ÞYNGDARSTIG 3 - Grænn kjölur
- Dæmisaga Esóps um góðvild og vinskap endursögð á einfaldan hátt og er vel til þess falin að efla úthald við lesturinn.
- Það er erfitt að vera þræll í Róm til forna og Andrókles flýr út í skóg þar sem hann mætir ljóni. Geta þrællinn og þessi stóra skepna hjálpast að?
- Þessi bók er í Usborne Reading Programme bókaflokknum sem hefur verið þróaður í samstarfi við sérfræðinga í lestri við Roehampton háskóla.
- Sagan er 794 orð og 260L samkvæmt Lexile þyngdarstuðlinum.
- Bókinni fylgir CD hljóðdiskur þar sem textinn er lesinn bæði með breskum og amerískum framburði og fletting gefin til kynna.
- Auðvelt er að nálgast og hlaða niður verkefnum með svörum auk kennsluleiðbeininga fyrir þessa bók á vef Rósakots, eða með því að smella hér.