ÞYNGDARSTIG 3 - grænn kjölur
- Þetta sígilda ævintýri eftir H.C.Andersen er endursagt á einfaldan hátt fyrir börn sem eru farin að lesa á ensku upp á eigin spýtur.
- Næturgalinn syngur svo fallega að allir sem á hann hlýða dáðst að honum. Þegar keisarinn í Kína fær svo nýjan, vélrænan söngfugl úr gulli og skreyttan rúbínum heillast hann af honum. Hvað verður þá um næturgalann?
- Fallega myndskreytt af Graham Philpot.
- Þessi bók er í Usborne Reading Programme bókaflokknum sem hefur verið þróaður í samstarfi við sérfræðinga í lestri við Roehampton háskóla.
- Sagan er 831 orð og 350L samkvæmt Lexile þyngdarstuðlinum.
- Bókinni fylgir CD hljóðdiskur þar sem textinn er lesinn bæði með breskum og amerískum framburði og fletting gefin til kynna.
- Auðvelt er að nálgast og hlaða niður verkefnum með svörum auk kennsluleiðbeininga fyrir þessa bók á vef Rósakots, eða með því að smella hér.